01Þjónusta
Allar tjónaviðgerðir á einum stað.
Frá tjónaskoðun til fullmálaðs bíls. Við gerum við allar gerðir ökutækja – fólksbíla, jeppa, sendibíla, mótorhjól og vélsleða.
- 01
Tjónaskoðun
Við skoðum bílinn, metum tjónið í CABAS-kerfinu og sendum matið rafrænt til tryggingafélagsins. Við tókum þátt í hönnun miðlægs CABAS-kerfis árin 2008–2009 og vorum fyrstir til að taka það í notkun.
- CABAS tjónamat
- Rafræn samskipti við tryggingafélög
- 02
Bílaréttingar
Við réttum allar gerðir ökutækja á grindaréttingabekkjum með tölvumælingu, svo bíllinn skili sér aftur í verksmiðjumálum. Starfsfólk okkar hefur sérþjálfun í hástyrktarstáli og álviðgerðum.
- Fólksbílar
- Jeppar
- Pallbílar
- Sendibílar
- Mótorhjól
- Vélsleðar
- 03
Bílamálun
Í 250 m² málningaraðstöðu með SAICO sprautuklefa og tölvustýrðri litablöndun málum við allt frá smáblettum upp í heila vörubíla. Unnið er með umhverfisvænu vatnslakki.
- Allar gerðir bíla
- Vörubílar
- Tölvustýrð litablöndun
- Vatnslakk
- 04
Plastviðgerðir
Margt af því plasti sem skemmist í tjóni má gera við – sem sparar bæði peninga og umhverfið. Við límum, sjóðum, munstrum og málum plasthluti svo þeir verði eins og nýir.
- Límum
- Sjóðum
- Munstrum
- Málum
- 05
Burðarvirkisúttektir
Eftir alvarlegt tjón þarf að staðfesta að burðarvirki bílsins sé í lagi áður en hann fer aftur á götuna. Við framkvæmum burðarvirkisúttektir á tjónabílum og sjáum um að afmá tjónastimpil.
- Tjónabílar
- Afmáum tjónastimpil
- 06
Framrúðuskipti
Starfsmenn okkar eru þjálfaðir í rúðuskiptum frá Pilkington og AGC. Við skiptum um bæði límdar og ídregnar rúður.
- Límdar rúður
- Ídregnar rúður
- Hliðarrúður
- 07
Loftfrískunarkerfi
Við þjónustum loftfrískunarkerfi (AC) – vacuum-tæmum, lekaprófum og fyllum á kælimiðil.
- Áfylling
- Vacuum-tæming
- Kælimiðill R-134A
Lentirðu í tjóni?
